Mikið magn áfengis = Mikið uppkast já
En já, frumsýningarpartýið var á föstudaginn, mjög mikil gleði og aðeins of mikið áfengi :/.
Tökum titlana á þetta:
Fyllibitta kvöldsins: Verð því miður að tilnefna sjálfa mig, þar sem allir eru búnir að láta mig vita af því.. Verð samt að hafa Kristínu Lind með þar sem hún var líka mjöög full og örugglega alveg jafn slæm og ég :s
Félagi kvöldsins: Klárlega Hrafn, þar sem við vorum saman mest allt kvöldið..
Hjálpari kvöldsins: Mjög margir bara, man eftir Hrafni að sjálfsögðu, Heiðdísi, Vordísi, Svandísi og fullt af fleirum örugglega sem voru að hjálpa mér þegar ég var orðin pínu drukkin og þurfti að koma ýmsu út úr munninum á mér og svoleiðis...
Driver kvöldsins : Nonni, pottþétt, takk Nonni fyrir að umbera ferskleika minn á leiðinni heim.
Setning kvöldsins: "Við heitum það sama (Hrafn og Hrefna), og auk þess erum við saman í náttúrufræði"... sögðum þetta við alla og oftar en einu sinni :)
Vantaði kvöldsins: Söru, þar sem hún var ekki með í þessu og Viktor! Fattaði það um kvöldið og fór á bömmer... Svo vantar auðvitað alltaf Elsu, Alexöndru og fleiri núorðið!
Dans kvöldsins: Ég, Kristín og Nína að dansa við "nú skal segja, nú skal segja" Mjög mikið flipp! :D
Man ekki meir! Takk allir fyrir að umbera mig....
En í gærkvöldi var dj Villi á öldunni og við Ella frænka, sem var hér um helgina skelltum okkur út á rúnt og kíktum á ölduna og margir voru hressir þar... þ.á.m. Viktor og svona! En maður var bara edrú og ferskur..:)
Annars er ég farin að læra fyrir ísl 403 próf, gangi mér vel, takk takk takk...
Bluuu!
Jæja félagi
Uss, núna er ég næstum því búin að blogga tvisvar í röð, það hefur ekki gerst síðan í 10.bekk eða svo.. Óskið mér til hamingju.
Ég ætlaði að fara að drulla yfir fótboltann hérna á austurlandi, en það var víst verið að gera samning LOksins við nýjan þjálfara, Kalla, þannig ég ætla að halda ró minni hérna :) Þetta hlýtur þá að vera að fara í gang núna þó það hefði löngu átt að vera hafið..
En loksins helgi, ég er hér í góðu yfirlæti, komin heim í kotið sem hljómar agalega vel.. Búin að moppa svona sirka heilan hund af gólfinu hjá mömmu þar sem hundurinn er í agalegu hárlosi, gríðar skemmtilegt!
Ætlaði bara að hafa þetta stutt.. Var búin að vera að pæla í barkanum, hvort maður ætti að reyna að púnga út einhverjum peningum sem eru ekki til til að fara á söngvakeppnina líka? Eða að maður geri bara eitthvað annað? Hvað segja menn ?
Elísabet
góðverk....
...gleðifréttir, ég er orðin foreldri... SOS-foreldri... eg a litla sæta stelpu.... fæ mynd senda af henni bráðum :)
svo segir fólk mig vera tilfinningalausa... tilfinningalaust fólk gerir ekki svona góðverk?
jæja farin að horfa a kallinn minn keppa i fótbolta
lesa bloggið hennar Söru fyrir neðan....
ahh..
En eins og allir klárir vegfarendur tóku eftir þá vorum við stúlkur staddar í Reykjavík síðustu daga. Það var mjög nett ferð og þakka ég fyrir góða ferð! Ég var tekin af löggunni í fyrsta skipti, sem var reyndar mjöög fyndið. Var stoppuð á Selfossi með Kristínu Telmu sofandi við hliðina á mér, og Hrefnu sif steinrotaða afturí. Kemur þá löggukallinn og spyr mig hvaðan ég sé að koma og ég segist nú bara að vera koma frá Egilsstöðum! "Já okey, ertu nokkuð til í að blása fyrir mig?" JÁ! ég er nefnilega bliiindfull að keyra frá egilsstöðum, með 2 sofandi stelpur í bílnum...
En þið munið að það eru komnar myndir á síðuna.. Annars bið ég bara að heilsa í bili, minstrelsið mitt er á leiðinni og ég ætla að koma mér vel fyrir í sófanum og horfa á úrstlitin í X-factor.. Gleði gleði.. ég elska helgar!
Elísabet.
nyjar myndir
Rvk, feb 07'
og Rvk, feb 07' - 2
Það vantar samt eitthvað af myndum í Rvk, feb'07 .. semsagt Hrefnu myndir
og svo á www.blog.central.is/sexstars sem Helga Jóna tók
allar nunnuarnar samankomnar
í gær komu Högni og óttar til okkar, Kristin og Alex voru herna lika, mikil gleði fyrir utan að hlusta a Högna og ottar i singstar...
fórum svo í ljósheima... það var fjör, drykkjuleikurinn var algjör snilld.... bananibanani....
svo o kvöld er stelputeiti hja Helgu jónu... býst við að stemmarinn þar verði fáránlega góður, það góður að engin okkar á eftir að fara utur húsi á morgun vegna þynku!
............eg sá nakinn karlmann í morgun.....
.....samt var það ekki kallinn minn....
...........................ekki fögur sjón.....
en Elsa kveður............ myndirmyndirmyndir koma eftir helgina frá mer...og svo stelpunum þegar þær snúa aftur til fjörðins fagra
Rvk framundan!
Næstu helgi munu nunnurnar sameinast
Ég og Sara erum að fara suður ásamt Kristínu Telmu og þá verður heil nunnuhelgi! 
Við ætlum að keyra eftir skóla á fimmtudag og til baka e-rntímann .. ekki alveg ákveðið hvenær þar sem opnir dagar eru í vikunni á eftir og því ætlum við að reyna að fá frí á þeim bara og vera lengur í RVK! Það er fínt..
Ætlum að hitta hellings fólk vonandi,, megið kommenta og plana með okkur góðan tíma,, en erum aðeins lausar frá 7-10 á morgnanna alla morgnanna þarna því hinir tímar dagsins eru uppbókaðir.
Djók!Öll kvöld munu fara í djamm þannig að endilega mætið bara á djamm og þá finniði okkur.... nei ok djók aftur! Við djömmum ekkert.

Annars... ákvað ég bara að koma með smá svona færslu í önnum mínum við lærdóm og já... bæ!
smá færsla ur borginni
nema stundum hitti eg Alex, Helgu og Tinnu og þá gerum við e-ð spennandi einsog að fara í keilu, sem við fórum samt ekki í... lögðum ekki í það að vera samtímis i keilu og íslenska landsliðið var að æfa... held það yrði bara hlegið að okkur
hinsvegar hélt eg smá hitting í gær, það var svona skemmtileg og ekki skemmtilegt, mest bara austfirðingar....
í næstu viku koma Sara,Hrefna og Kristin, get varla beðið... getum við farið að gera svona "stelpu hluti" saman...
en þetta er orðið hlægilega leiðilegt blogg svo eg kveð að sinni...
p.s. R.... hættu að búa til sögur um fólk, sérstaklega þegar þær særa vini þina!
p.s.s. Hrefna er búin að setja inn myndir frá Þorrablóti ME og Þorrablóti Seyðisfjarðar í "Myndirnar okkar!" Skoðið!!!!
........áts?
Ný og endurbætt síða!
Þar sem síðan okkar nunnanna (Hrefnu, Elsu og Söru) á blog.central.is eyðilagðist á einhvern óskiljanlegan hátt höfum vid ákveðið ad gera nýja og betri síðu á þessu vonandi betra kerfi.
Fyrir hönd okkar nunnanna, er ég, Hrefna, því að blogga þessa fyrstu færslu okkar á nýju síðunni okkar!
Vonandi samgleðjist þið okkur og takið jafn góðan þátt í þessari síðu og þeirri gömlu!
Jæja, nú erum við Sara að berjast við að gera þessa síðu fallega, svo að annað, betra blogg er væntanlegt fyrr en seinna!
Bless bless
Hrefna nunna!
