Partý all day long!
Ég vil byrja á að tilkynna að ég var að setja myndir inn frá laugardagskvöldinu í Valaskjálf, þær eru ekki margar en allavega komnar inn. Elsa er svo búin að vera að setja inn myndir frá afmæli Gumma bróður míns sem var á föstudaginn heima en held hún sé ekki búin samt.
Á föstudaginn var semsagt partý heima hjá mér sem bróðir minn var með.. Gaman þar :) En endaði á því að ég þurfti að reka alla út með hjálp frá góðum partýgestum þegar þetta sprakk endanlega með spegilbrotum og slíku rugli. Þannig þá fóru allir á láruna og þar var stuð að kljást við fyrrv. Bekkjarsystur manns sem var að reyna að henda manni út. Þvílíkt rugl! Við vorum nú bestu vinkonur í 3.bekk. Gaman að það skyldi EKKI takast að henda manni út. Múhaha!:D
Á laugardaginn var valaskjálf með þetta og allir þar að djamma.. Það var líka gaman. En ekki eins gaman hjá Elsu á meðan! Hún var edrú að keyra og mætti ekki í valaskjálf.
Við Elsa fórum í bíó í gær. Fórum á fantastic four 2, mér fannst hún góð og mæli alveg með henni. Sif var líka þar af einskærri tilviljun.
Helgi Snær tók myndir af mér um daginn, fórum út á Vestdalseyri og hann tók fullt af nettum myndum. Hann er þvílíkt góður ljósmyndari drengurinn og á hrós skilið fyrir að vera svona duglegur að þróa sig sjálfur. Þetta var ægilega gaman og til gamans læt ég þrjár myndir fylgja hér með:



Annars afskaplega lítið að frétta. Eftir þessa vinnuviku kemur viku frí þar sem maður fer á námskeiðin á LungA. Algjör þvílík snilld sem það nú verður vonandi! Þú ert auli ef þú ætlar ekki á neitt námskeið.
Kveðjur!
p.s. Er búin að búa til sér notendur fyrir okkur allar svo við þurfum ekki alltaf að setja nöfnin okkar með. Sjáið hér neðan á blogginu hver bloggaði þetta ;)
ömurlegt
hver vill annars gefa mer 50þusund krónur þar sem eg á þær enganveginn!!!
keyrði lika a fugl!
----------------hver vill fá bílinn minn? er hætt að nota hann!!!!!
Elsa
Krit 2007
Lögðum af stað frá Keflavíkurflugvelli kl. 13:50 og lentum á Krít kl. 23:30 að staðartíma.
Frá flugvellinum i Chania í 35 stiga hita keyrðum við í meira en klukkustund til Rethymnon á hótelið okkar (sem var samt 9 kílómetrum frá bænum).

Komum a hotelið og tekkuðum okkur inn og fengum lykil að herberginu. Þegar inn var komið blasti við okkur hjónarúm, annað rúm, baðherbergi, eldhusinnrétting og rennihurð! Vorum svo sáttar með þetta risa herbergi!....
Ákvaðum svo að kíkja inn um rennihurðina og þar blasti við okkur annað hjónarúm, annnað rúm, annað baðherbergi og önnur eldhúsinnrétting! Já, það var opið milli herbergjanna!
Við vorum nu ekkert voða sáttar með þetta svo við fórum i lobbíið og báðum karlinn þar um að lata okkur fá nýtt herbergi.... En það var ekki hægt. Hann kom með okkur upp og lokaði rennihurðinni og sagði svo við okkur að við kæmumst inn i hitt herbergið en enginn kæmist yfir til okkar! (erum ekki alllveg jafn ljóshærðar og við lítum ut fyrir að vera!)....
Við sættum okkur að sjálfsögðu ekki við þetta og heimtuðum nýtt herbergi!
Eftir langt og strangt röfl fengum við loksins nýtt herbergi!
Þegar við komum þar inn tók á móti okkur 50 stiga hiti og engin loftræsting!... fórum við þa einaferðina enn niður i lobbí til að kvarta! Þá kostaði aukalega til að leigja loftræstingu,en við gerðum það svo við myndum nu ekki deyja ur hita... bókstaflega!!

Daginn eftir kíktum við a ströndina! Hún var úr grjóti! Við kærðum okkur ekki um að fara að liggja þarna og hringdum i farastjórana til að kvarta! Á endanum fengum við nýtt hótel í nýjum bæ og þá breyttist ferðin til hins betra!

Keyrðum til Chania sem var klukkustund i burtu, eftir langa leit að hótel Malou fundum við það og tekkuðum okkur þar inn! Það var svo mikið betra hótel, bara Íslendingar á því og allt frábært!
Seinna um daginn kíktum við a ströndina og um kvöldið fórum við út að borða hjá gömlu höfninni.

......og kíktum svo a skemmtanalífið í miðbænum!
Toppurinn var að kynnast svertingja sem heitir White! Einnig kynntumst við hermanni og líklega ljótasta manni veraldar!

Ljóti maðurinn <--

Michael (hermaðurinn)!
Daginn eftir fórum við á ströndina. Keyptum okkur vindsængur til að fara ut a sjó í sólbað því ef við ætluðum að flagga júllunum á ströndinni störðu allir gömlu grísku perrarnir a okkur. Þennan dag gerðum við voða lítið annað.

Á Þriðjudeginum fórum við í miðbæinn að versla og um kvöldið keyptum við okkur nammi og höfðum sjónvarpskvöld
Miðvikudagurinn (sá skemmtilegasti):
Fórum a ströndina... Syntum með vindsængurnar lengst i burtu og lögðumst á þær. Allt i einu heyrum við hljóð í strákum, þá er þar strákahópur með bolta og kostuðu boltanum alltaf nær og nær i áttina að okkur, mjög barnalegt! Á endanum kastaði einn nánast i mig svo ég tók boltann þeirra og “dúndraði” honum eins langt og eg gat i burtu (fór ekkert ægilega langt). Svo seinna þegar við vorum komnar aftur á ströndina komu 2 af strákunum og tala við okkur (Andreas og Emil)!

.......Eftir smá spjall ákváðum við að hittast um kvöldið á strandbarnum.
Eftir ströndina fórum við bara út að borða og svo á strandbarinn að hitta strákana. Þar biðu þeir með foreldrum sínum og við fórum til þeirra. Komumst að þvi að þeir voru 90 módel nema einn sem var jafngamall okkur og átti einmitt afmæli þennan dag. Ég tók mig þá til og söng fyrir hann afmælissöngin, bláedrú!! Eftir svolitla stund fóru 3 af strákunum og vorum við þa bara 4 eftir.... ákváðum að kíkja a Splendid (staðinn sem Urður benti okkur á) þar var geggjað gaman!

Hrefna og Emil(90model :) ) hættu ekki að slefa upp í hvort annað þetta kvöld!

Svo eg þurfti að leita að nýjum dansfélaga! Fann eg þar austfirðing og fleira skemmtilegt fólk til að hanga með þar sem Hrefna min sá mig ekki fyrir þeim litla ;)

Við komum ekki heim fyrr en kl 6 en ekki má eg gleyma að strákarnir voru sóttir um 4leytið af foreldrum sinum...
Ég hef ekkert mikið meira að segja frá þessari ferð nema að fólki langi að vita að við lágum í sólbaði það sem eftir var að ferðinni...


Nema verð ég að segja frá gömlu konunni sem var með okkur a hóteli. Hún var búin að vera full alla ferðina og klukkan 6 daginn sem við fórum var hún að reyna að kaupa ser a barnum en dóttir hennar bannaði henni það svo hún mundi nú ná flugvélinni og hún missti sig allgjörlega! Sagði við e-rn mann í rútunni á leiðinni á flugvöllinn (þau sátu fyrir aftan okkur) “ohh það er allt ömurlegt herna!” hahaha

Hittum einmitt strák með flott hár!
THE END
p.s það var 45 graðu hiti allan timan
pp.s. Hvað ætlar fólk að gera um helgina
ppp.s af sund a eftir klukkan 5
pppp.s Huginsleikur a eftir kl 7
ppppp.s Sara hvenær ætlar þu að slást i hópinn og kyssa yngri strák?? ....mæli samt með 3árum yngri því við Hrefna erum buinar með hin 2 :) ahahahahahaahaha
pppppp.s Hrefna ritskoðaði.
ELSA Pelsa
Photos
Bara að segja að það er kominn svona helmingurinn af myndunum minum frá Krít.. Elsa bloggar um ferðina
Ble
...
Annars varð stelpan fullorðins á dögunum sem var feiknar gaman. Mæli sterklega með því að fara í golf á djamminu! En ég var mjög hress og endaði kvöldið á að vera að rífast við mann á Lárunni, Ég var ekki að fíla hann. Hann hélt ég væri frá Tælandi og mér fannst það ekki fyndið og komst ekki yfir það hversu heimskur einn maður gæti verið, hann átti samt víst við að ég Væri tælandi,, en hann var samt ekki með þetta!
Eeen. Í kvöld erum mflokkurinn að fara á djammið.. Byrjum daginn snemma með hinsegin degi hjá Kalla, svo skellum við okkur öll í sund og grillum heima hjá Alex og sprellum eitthvað duglega fram eftir kveldi og endum svo bliindfullar á balli með Tomma frænda og co! :)
En ég hef eitthvað betra að gera... Bless og allir á ball í kvöld! :)
Allt að gerast
Ég ætlaði nú með þessu bloggi fyrst og fremst að láta ykkur vita að allar mínar myndir sem ég tók á afmælinu hennar Söru og einnig frá ballinu með Todmobil 16.júní eru komnar inn.
Vonandi njótið þið þeirra vel.
En afmælið hjá Söru var mjög skemmtilegt, við skvísurnar fórum út að borða á Hótel Öldu og fengum hreint og útbeint gjeeeðveikan mat! Mmmm og við höfðum bara gaman þar og dönsuðum meira að segja dálítið þegar aðrir kúnnar voru farnir..
Svo héldum við að skipta um föt og beint út á golfvöll! Ó já það var gaman. Við Kristín Telma vorum saman í liði og gekk alls ekki vel svona fyrst hjá okkur, maður skaut út í skurð og fleira :$ En svo bara náðum við þeim stelpunum ;)
Svo fórum við heim til Söru og þá sá hún afmæliskökuna sem við Elsa bökuðum kvöldið áður :D Geggjuð en ég bara STEEEINgleymdi að taka mynd af henni :(
Þar var farið í singstar ofl.. Svo var smá myndataka niður í fjöru og svo í endann fóru allar stelpurnar heim nema ég og Sara og við skruppum nú á smá rölt og enduðum á lárunni. ;)
Tek fram að Elísabet Sara var hrein og tær SNILLD þetta kveldið ;)
Svo var ball á laugardag með Todmobil eins og flestir ættu að vita og það var bara mjög gaman en of stutt samt!
Eftir það fór maður beint niður á Seyðis þar sem Alex keyrði bílinn hennar Elsu og við Elsa og Goran reyndum að starta eftirpartý heima hjá dönunum eeen það mættu voða fáir :/
En jæja, skoðið bara myndirnar.. Þær segja aðeins meira..
Annars er allt að skella á í mínu lífi, Krítarferðin eftir aðeins þrjá sólarhringa eða á laugardaginn en ég fer suður á föstudagskvöldið. :)
En ég hef nokkuð mikið að gera í vinnunni núna þannig ég ætla ekki að hafa þetta lengra.
Hafið það gott.
Hrefna
já
Glenn og Thomas eru ekki meða þetta!
allir i sund á morgun....
ekki okei
agætt ball? samt svo stutt
elsa
Afmæli - Afmæli!
Hún Elísabet Sara (ein af okkur, hinum fræknu nunnum fyrir þá sem ekki hafa fylgst með) elskan er 18 ára í dag! Til hamingju með það elsku sæta stelpan mín! :* Knúsa þig á eftir þegar ég sé þig ;)
En já í tilefni þess erum við Sara, Elsa, Kristín Telma, Ljósbrá og Alexsandra að fara að borða á Hótel Öldu í kvöld og svo í golf kannski og bara sprella fram eftir nóttu! Kristín Lind ætlar að flýja á Akureyri, þvílíkur pappakassi! En ef þið viljið fylgjast með eða taka þátt þá er ykkur heimilt að kíkja á Seyðisfjörð! En ég lofa engu partýi.. haha ;)
Svo er ball á morgun með Todmobil þannig þetta er ekki ein af þessu rólegu helgum og þær verða það fáar þetta sumarið.. :)
En mér til mikillar gleði er fótboltaæfing klukkan 08:00 á Sunnudagsmorguninn! Ég fersk þar? Haha sjáum til!
Annars vil ég minna ykkur á að eftir 8 sólarhringa verðum ég og Elsa í einu stykki af flugvél á leið til Krítar! Jebb við munum svo sannarlega skemmta okkur vel þar og vonandi koma með smá lit á hörundi okkar þegar til baka verður snúið.
Svo bara Huginn - Snörtur á morgun hér á Seyðisfirði klukkan 14:00 að staðartíma. Allir að mæta á hann og styðja liðið í gulu og svörtu búningunum.
Jæja ég er farin að blogga allt of oft núorðið en enn einu sinni, til hamingju með daginn Sara mín! Nú máttu loksins kaupa þér sígarettur sjálf, nú getur mamma þín hætt að kaupa þær fyrir þig ! ;) Hehe ég er svo fyndin!
En ég slútta þessu hér og nú.
Jónsdóttir, Hrefna Sif
p.s. Myndirnar frá fótboltapartýinu seinustu helgi og líka frá ballinu um sjómannadagshelgina eru komnar inn.
Krít 23.júní !
sjitt skyndiákvörðun og tæææær SNILLD!!!!!
vei vei vei vei!!
---
ok smá svona útrás fyrir ofan!
EN já semsagt stefnir í alveg Geeeðveikt sumar!
Núna um helgina er djamm báða dagana, semsagt afmæli Söru á föstudaginn og ball á Laugardaginn í Valaskjálf! Vei!
Helgina eftir er sjálf Krítarferðin okkar Elsu!! :D
Helgin eftir það er óákveðin...
Svo er bara fullt eftir : LungA, Versló, e-r fótboltapartý Hattar vonandi ?? og endalaus djömm og böll! ;) Vúhhú!
p.s. Myndir frá djamminu seinustu helgi eru komnar inn í "Myndirnar okkar" ;) Njótið
Varúð! Löng færsla!
Í morgun vaknaði ég þvílíkt glöð vegna sólarbirtunnar sem skein í augun mín enn einn daginn. EN nú hafa veðurguðirnir skemmt daginn fyrir mér. Þeir ákváðu að vökva aðeins náttúruna, en vonandi kemur það til góðs með því að gróðurinn dafni betur!
Síðastliðna daga hefur ekki margt frásögufærandi gerst í lífi mínu. Eða jú maður fór á sjómannadagsball á laugardaginn eins og sást á blogginu mínu seinasta, þá ákvað ég að "blogga" þegar ég kom heim en ég sagði ekki mikið frá því í blogginu. En það var allavega eitt gott ball og ég skemmti mér konunglega! Myndir væntanlegar þegar ég nenni að setja þær inn.
Þá hef ég einnig afrekað að gera ein stór mistök í vinnunni sem yfirmaður minn, hann Jóhann þurfti að laga fyrir mig og það vel! :$ Held við höfum misst einn kúnnann þar.
Núna er ég komin enn einn hringinn í pælingum mínum um að fara suður fyrir horn í vetur og skipta um skóla og allt það vesen! Þar sem ég er búin að taka nokkuð margar ákvarðanir um það en ég bara get ekki látið eina góða ákvörðun standast.. Þannig að ég hef ákveðið að ákveða þetta bara alls ekki fyrr en þegar ég neyðist til þess uppá skólana og það. Elín er búin að vera ansi sannfærandi um að ég bara eigi að koma suður og við getum gert íbúðina svo kósí og fullt af svona skemmtilegu. Og hún móðir mín góða er búin að bjóða mér að fá yfirráð yfir hinum fallega og margrómaða Marel án þess þó að þurfa að borga tryggingar og það allt vesen. Hljómar fjandi vel!
En þetta verður ein góð og erfið ákvörðun.
Annars þá er föstudagur og það merkir nú yfirleitt aldrei annað en gleði, gleði, gleði. En gleðin sú þessa helgina verður áfengislaus takk fyrir, bæði vegna mikillar þynnku eftir seinustu gleði og vegna knattspyrnuleiks sem keppt verður á sunnudaginn á Sauðárkrók. Ég ætla ekkert að reyna að hvetja ykkur sem búið hér fyrir austan til þess að mæta því ég veit þið nennið því ekki ! :) En ef það leynast einhverjir dyggir aðdáendur fyrir norðan þá bara endilega að mæta. ;)
Eitt enn að lokum. Ég er búin að skrá mig í L.ung.A. Sá svo hrikalega eftir því að hafa ekki farið í fyrra að ég er búin að skrá mig núna í Urban funk, jazz, fusion. Held það verði geggjað, vonandi. Hver kemur með?
Jæja, farin að finna mér eitthvað að gera hér í Austfar.
Ykkar,
Hrefna Sif.
p.s. Endilega hringið í 472-1111 og bókið yndislega siglingu með Norrönu og hver veit nema þið verðið heppin og fáið afslátt! :D
